Troodos fjöll eru skammt frá Ólympus fjalli og auðvelt að komast þangað frá Limassol. Fjöllin bjóða upp á góðan griðastað frá hitanum. Hæsti tindurinn, og sá hæsti á Kýpur, er 1.952 metrar. Þetta er frábært svæði fyrir þá sem hafa gaman af rólegum gönguferðum eða skíðaferðum og útreiðartúrum.

Ferðamannastaðirnir í fjöllunum eru frægir fyrir munkaklaustur sín og kirkjur. Þeir voru viljandi hafðir fjarri ströndinni og eru núna miðstöð Býzantískrar listar. Fögur fjallaþorpin eru vinsæl og mörg hver fræg fyrir framleiðsluvörur sínar. Prodromos er það þorp á Kýpur sem hæst stendur og þar er sagt að bestu eplin vaxi og þorpið Pedoulas er frægt fyrir kirsuberin sín. Vín, ölkelduvatn og rósavatn eru framleidd á þessu svæði og seld á staðnum eða flutt út.


Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan