Atlas International fagnar komu þinni á vefsetur sitt, þar sem mikið er af nýjum aðgerðum til að auðvelda þér að finna þér þinn stað í sólinni. Við erum með þúsundir eigna á Spáni, Kýpur og á grísku eyjunum og munum bæta Tyrklandi við í sumar.
Einstakt fyrirkomulag okkar tryggir að við getum hjálpað þér við allt sem snertir kaupin. Allt frá því að taka lán, fá lögfræðiráðgjöf, hjálp við gjaldeyriskaup og fulla aðstoð eftir kaupin. Þar er meðal annars átt við aðstoð við að flytja inn, útvega húsgögn, finna skóla og hjálp við fasteignarekstur svo fjárfesting þín verði þér sem hagstæðust.
Við höfum fengist við fasteignasölu á Spáni í meira en 30 ár. Frá upphafi hefur Spánn verið vinsælasti staðurinn fyrir þá sem vilja kaupa sér sumarleyfishús eða heilsárs heimili og einnig þá sem hafa áhuga á stöðugri og góðri fjárfestingu í fasteign erlendis. Að meðaltali hafa fasteignir á Spáni hækkað um meira en 175% síðastliðin 10 ár og búist er við mikilli hækkun næstu 20 árin.
Við erum með mikið úrval fasteigna á Kýpur, allt frá íbúðum við ströndina til lúxus einbýlishúsa. Verið er að hanna mikið af frábærum nýjum svæðum á Kýpur og þar á meðal bæði flugvelli og golfvelli.
Fasteignamarkaðurinn blómstrar þar og búist er við að hann vaxi jafnvel hraðar eftir að Kýpverjar taka upp evruna í janúar 2008.
Grísku eyjarnar með sínar þjóðlegu grísku hefðir eru skínandi staður fyrir þá sem leita að einhverju frábrugðnu því venjulega. Eins og er seljum við eignir á Krít, Santorini og Paros, og búist er við mörgum nýjum svæðum á næstunni. Þó um sé að ræða tiltölulega nýtt svæði á aðþjóðlegum fasteignamarkaði er vöxturinn þar um 10–15% á ári.
Þjónustulipurt sölufólk okkar er tilbúið til að hjálpa þér hvenær sem er. Þú getur líka pantað ókeypis bækling með því að smella hér, en þar er að finna upplýsingar um eignir bæði á Spáni, Kýpur, grísku eyjunum og í Tyrklandi.
Þegar þú ert tilbúin(n) til að fara að skoða eignir bjóðum við sérhannaðar kynnisferðir sem ekki kosta nema frá 49 pundum. Þar mun sölufólk okkar sem sjálft hefur flutt til viðkomandi svæða á vegum Atlas svara spurningum þínum og hjálpa þér að finna draumaeignina þína.
Eignir í... Spánn - Torrevieja, Sierra de Hondón, San Pedro Del Pinatar, Meira Kýpur - Peyia, Oroklini Village, Larnaca, Paphos, Meira Grísku eyjunum - Fournado, Dryos, Monolithos, Trachillos Bay, Meira