Húsnæðislán í evrum

Þegar þú kaupir eign á Spáni getur verið að þú þurfir að fjármagna kaupin með því að taka lán í evrum.

Við hjá Atlas International erum í viðskiptum við einn af helstu bönkum Spánar og getum boðið samkeppnisfær fasteignalán í evrum. Þú getur fengið lán fyrir allt að 70% af kaupverðinu. Vextir eru núna 3,95%. Lánin eru til 5, 10, 15 eða 20 ára og aldurshámarkið er 75 ár. Það þýðir að greiða verður lánið upp fyrir 75. afmælisdaginn.

Hægt er að sækja um lánið eftir að hafa tekið frá draumahúsið á Spáni. Upplýsingar um tekjur verða sendar til lánasýslu okkar á Spáni, sem mun sækja um lán í þínu nafni svo þú þurfir ekki sjálf(ur) að hafa áhyggjur af því að fylla út spænsk umsóknareyðublöð. Þessi evrulán nægja oftast fyrir tveimur síðustu greiðslunum af húsinu þínu svo þú þarf að greiða upphaflega 10% staðfestingagjaldið og greiðslu númer 2. Lánið verður greitt út þegar byggingu er lokið.

Þú þarft að láta lánadeildinni okkar í té eftirfarandi þegar þú ert búinn að taka frá hús:

Afrit af vegabréfi

Launaseðla fyrir sex mánuði

P-60 form

Ef þú ert ekki launþegi þurfum við að fá eftirfarandi:

Afrit af vegabréfi

Síðasta skattframtal

Reikningsyfirlit fyrir síðasta ár

Til að fá nánari upplýsingar skaltu hafa samband í síma 0845 241 1013 eða senda bréf á financialassistance@atlasinternational.com


Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan