Hvers konar eignir eru til sölu hjá Atlas?
Við erum með ýmsar ólíkar gerðir af nýbyggingum á Costa Blanca, Costa Calida og nú nýlega höfum við einnig farið að bjóða nýjar byggingar á Costa Almeria. Við sinnum nú allri ströndinni frá Altea til Almeria, og seljum bæði eignir við ströndina og inni í landi. Þar á meðal einnig eignir í endursölu.
Hve oft eru skoðunarferðir og hvert er verðið?
Skoðunarferðin tekur fjóra daga (þrjár til fjórar nætur). 222;ú þarft helst að bóka þig í skoðunarferðina með mánaðar fyrirvara. Skoðunarferðin er einstaklingsmiðuð og því velur þú þá dagsetningu sem hentar þér og við bókum flugið Ferðin kostar ca. 19.500 kr. á mann. Flogið er til Alicante beint frá Íslandi, í gegnum Bretland eða Kaupmannahöfn. Einnig er flogið til Almeria. Ferðirnar, gisting, allar máltíðir og leiðsögn er innifalin í verðinu. Nánari upplýsingar veitir Dagný Bjarnadóttir umboðsmaður Atlas International á Íslandi í síma 586 2880 eða 696 1960 (GSM) eða í netfangi: sales@atlasiceland.com.
Aftur upp
Hvað er gert í skoðunarferðunum?
Skoðunarferðirnar eru tækifæri til þess að skoða eignir sem henta kröfum þínum. Hvort sem þú ert að leita að þriggja svefnherbergja einbýlishúsi fyrir sumarhús eða að íbúð á ströndinni til að leigja út allt árið geta sérfræðingar okkar leiðbeint þér við hvert skref.
Aftur upp
Hvernig greiði ég fyrir eignina?
Ef þú kaupir hús hjá Atlas International er staðlaða greiðsluferlið svona:
3000€ staðgreiddar til að festa eignina
10% af því sem eftir er innan 14 daga (að frádregnu staðfestingagjaldinu)
40% 30 dögum eftir að eignin var tekin frá
25% þremur mánuðum áður en smíði er lokið
25% þegar eignin er orðin fullkláruð
Ef hinsvegar er um endursölu að ræða þá eru greiddar 3000€ í staðfestingargjald.
10% af því sem eftir er innan 14 daga
90% við gerð kaupsamnings
Aftur upp
Hvað mun ferlið taka langan tíma?
Það fer eftir því um hvernig eign er að ræða og á hvaða byggingarstigi hún er. Ef um endursölu er að ræða ætti ferlið að taka svona 3 mánuði.
Aftur upp
Er um nokkurn aukakostnað að ræða?
Auk verðsins á fasteigninni þarftu að borga 10-12% af fasteignarverðinu í kostnað. Þessi kostnaður fellur í gjalddaga þegar eignin er tilbúin. Innifalið er 7% IVA (sem er ígildi virðisaukaskatts, í sumum tilfellum greiðir þó byggingaraðilinn IVA af öllum afborgunum) og 4% sem fara til lögfræðings þíns til að greiða skatta og önnur gjöld sem tilheyra eignakaupunum.
Aftur upp
Ég þarf að selja húsið mitt á Íslandi áður en ég kaupi, get ég samt haldið áfram?
Eftir því hvernig fjárhag þínum er háttað getur verið mögulegt fyrir þig að fá auka veðlán í stuttan tíma til að fjármagna kaup þín erlendis þangað til húsið þitt er selt. Við erum í sambandi við sjálfstætt verðbréfafyrirtæki sem leitar að möguleikum sem henta þér best. Það getur tekið svona 6 – 8 vikur að losa um fjármagn eftir að umsókn þín hefur verið móttekin og samþykkt.
Aftur upp
Hve mikið þarf ég að gera ráð fyrir að þurfa að borga árlega fyrir húsið mitt á Spáni?
Á hverju ári þarftu að borga eignaskatt, fasteignagjöld og fyrir vatn og rafmagn. Þú getur gengið frá þessu við Spænska bankann þinn. Gjöldin eru tæplega 100.000 kr. á ári eða 8.000 kr. mánuði, miðað við að gengi punds sé 112 kr.
Aftur upp
Þarf ég að hafa spænskan lögfræðing?
Það er mælt með því að þú látir spænskan lögfræðing sjá um afsal fyrir eign þinni, því þeir þekkja lögin á Spáni og vita hvernig hlutirnir ganga fyrir sig. Yfirfærslan mun ganga betur og kosta minna og þá er ekki þörf á að þýða skjölin. Atlas International getur mælt með þjónustu lögfræðifyrirtækis á Spáni.
Aftur upp
Þarf ég erfðaskrá á spænsku?
Það er ráðlegt að ganga frá spænskri erfðaskrá þegar búið er að ganga frá afsali fyrir húsið þitt á Spáni. Kostnaður er í kringum 9000 kr, ef gengi punds er 112 kr. Hún tekur bara til eigna þinna á Spáni eins og hússins og bankareiknings þíns. Ef erfðaskrá á spænsku er fyrir hendi verður allt varðandi erfðirnar ódýrara fyrir arftakann.
Aftur upp
Hvernig opna ég bankareikning á Spáni?
Ef þú kaupir hús á vegum Atlas International getum við opnað bankareikning fyrir þig á Spáni.
Aftur upp
Hvernig sæki ég um búsetuleyfi?
Þú getur sótt um búsetuleyfi ef þú býrð samfellt meira en 6 mánuði á Spáni. Það tekur þig svona eitt ár að fá leyfið og umboðsmaður þinn (lögfræðingur) á Spáni getur aðstoðað þig við umsóknina.
Aftur upp
Hvað er reikningshaldari?
Reikningshaldari er einhver sem sér um að greiða skatt fyrir þig til spænskra stjórnvalda. Það er nauðsynlegt fyrir þig að fá atvinnumann til að sjá um þetta fyrir þig því pappírsvinnan getur verið mjög flókin.
Aftur upp
Eruð þið með eignir til endursölu?
Við höfum mikið af eignum til endursölu allt frá stúdíóíbúðum til fullbúinna einbýlishúsa með einkasundlaug. Til að fá meiri upplýsingar er best að tala við umboðsmann okkar á Íslandi. Hann veitir upplýsingar um endursölueignir hjá okkur. Umboðsmaður Atlas á íslandi er: Dagný Bjarnadóttir, sími 586 2880 eða 696 1960 (GSM) netfang: sales@atlasiceland.com
Aftur upp
Get ég látið Atlas International selja húsið mitt á Spáni fyrir mig?
Í Atlas hópnum erum við með fyrirtæki sem heitir Resales Espana. Skrifstofan þeirra getur sett húsið þitt á markað og selt það fyrir þig. Til að fá nánari upplýsingar er best að hafa samband við umboðsmann okkar á Íslandi sem getur leiðbeint þér. Umboðsmaður Atlas á íslandi er: Dagný Bjarnadóttir, sími 586 2880 eða 696 1960 (GSM) netfang: sales@atlasiceland.com
Aftur upp
Get ég látið Atlas International sjá um að leigja húsið mitt út?
Já, innan Atlas er einnig skrifstofa sem heitir Atlas Property Management sem getur leigt út og séð um húsið þitt allt árið fyrir sanngjarnt gjald. Líka er boðið upp á viðbótarþjónustu eins og að sækja gesti út á flugvöll og að sjá alveg um rekstur hússins. Það getur einnig falist í þessu að sjá um regluleg þrif á húsinu og garðinum.
Aftur upp
Get ég tekið gæludýrin mín með til Spánar?
Best er að þú hafir samband við dýralækninn þinn, hann getur svarað því. Það getur verið misjafnt hvaða reglur eru í gildi eftir því um hvaða dýr er að ræða.
Aftur upp
Er maður sjúkratryggður á Spáni?
EVRÓPSKA SJÚKRATRYGGINGAKORTIÐ sem þú færð hjá Tryggingastofnun ríkisins veitir þér rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu meðan á tímabundinni dvöl stendur. Sjá nánari upplýsingar á vef Tryggingarstofnunarinnar (www.tr.is). Ef þú ætlar að flytja til Spánar er ráðlegt að fá sér sjúkratryggingu (Atlas International getur útvegað hana).
Aftur upp
Hvað verður um lífeyrinn minn frá ríkinu ef ég flyt alfarið til Spánar?
Þú getur látið flytja lífeyrinn þinn beint í bankann þinn á Spáni ef þú vilt.
Aftur upp
Hvaða spenna er á rafmagni á Spáni?
Já, yfirleitt er 220 volta spenna á Spáni en sums staðar er ennþá 110 volta spenna.
Aftur upp
Hvernig fer ég að því að leita mér að vinnu?
Það eru ekki margar vinnumiðlanir á Costa Blanca, en það eru nokkur vefsvæði á Internetinu sem ættu að geta hjálpað þér að finna vinnu.
Aftur upp
Get ég fengið húsnæðislán í evrum?
Þú getur sótt um Spænskt húsnæðislán fyrir 70% af kaupverðinu og til 20 ára mest. Greiða þarf lánið upp við 75 ára aldur. Auðvelt er að sækja um lán með aðstoð lánadeildarinnar okkar.
Aftur upp