Golf Guide

Costa Blanca svæðið er sennilega eitt af bestu svæðum við Miðjarðarhafið til að æfa golf þar sem meðalhiti ársins er að jafnaði 22 gráður. Golf er í mikilli uppsveiflu í héraðinu og það er gjarnan kallað “gullna strönd Spánar”.  Nú þegar eru 15 meistaragolfvellir á svæðinu á milli Alicante og La Manga og 10 í viðbót eru í byggingu og er svæðið langt komið með að fara fram úr Costa del Sol í golfuppbyggingu og markaðssetningu. Með möguleika á beinum útsendingum frá PGA mótum er hægt að gera ráð fyrir allt að 50% aukningu á verðmæti golfeigna á Costa Blanca og auknum áhuga, einkum frá Norður Evrópubúum. Costa Blanca er nú þegar vinsæll staður hjá þeim sem kaupa hús á Spáni, hvort sem það eru Spánverjar eða útlendingar og er upplagður staður fyrir nýja golfvelli. Veðurfar er mjög hagstætt árið um kring og með því að örva notkun golfvallanna á veturna gæti hagnaður eigenda þeirra aukist. Samband er við allar helstu borgir Evrópu með daglegu flugi til þriggja flugvalla (Alicante, Valencia og Murcia). Uppbygging golfvalla á svæðinu mun örva byggingarframkvæmdir og auka framboð af bæði einbýlishúsum og íbúðum, og þetta er því einstakt tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á að fjárfesta í eign með aðgengi að golfvelli.


Golf in the Costa Blanca

Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan