Golfvellir

La Manga Golf Club

La Manga klúbburinn var opnaður árið 1971. Norður og suður vellirnir í La Manga eru í dal sem er umkringdur fjöllum og útsýnið til Mar Menor er stórkostlegt. Mikið er af pálmatrjám á þessum tveimur völlum, en vesturvöllurinn er í fjalllendi umkringdu furuskógi. 

Klúbburinn býður upp á frábæra golfverslun, kylfusveina og æfingasvæði sem á engan sinn líka á Spáni. Þar eru 90 höggbásar og 3 púttvellir, svæði fyrir stutta leiki og sandgryfjur til æfinga. La Manga Club Golf akademían skipuleggur fullkomin æfinganámskeið fyrir golfleikara af öllum styrkleikaflokkum og einnig einkakennslu.

 

Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan