Marina golfvöllurinn er á hinu fræga ferðamannasvæði Mojácar og er einn af bestu völlunum í héraðinu. Það var Ramón Espinosa sem teiknaði hann og hugmynd hans var að nota frekar lítið svæði sem er bæði flatlent og hæðótt undir völlinn. Lengd vallarins er 5.464 metrar, sem hentar vel fyrir völl af þessari gerð.
Völlurinn skiptist í tvennt með háum höfða og er 18 holur og par 72. Hann er innan Marina Torre svæðisins. Þar er dásamleg útsýni til allra átta, sjórinn annars vegar en akrar hins vegar og gefur það vellinum sérstakt svipmót. Hægt er að leika 9 holur á flatlendinu við ströndina en hinar holurnar eru í fjalllendi með annars konar útsýni og nánast annað loftslag. Sumir teigarnir eru stórkostlegir, flatirnar frábærar og þremur stöðuvötnum er komið fyrir á leiðinni til að gera völlinn skemmtilegri.
Klúbburinn er á miðju vinsælu ferðamannasvæði og þaðan er stutt í ýmsa aðra starfsemi. 17 kílómetrar eru að frábærum baðströndum og víkum. Í flestum þeirra er fremur fámennt mestan part ársins. Ýmsar vatnaíþróttir er hægt að komast í við Garrucha smábátahöfnina. Landslagið er ógleymanlegt á svæðinu. Eyðimerkurlandslag í nágrenninu og Mojácar er einhver athyglisverðasti márabærinn á Spáni. Hlykkjóttar og þröngar göturnar minna á forna frægð og hvít húsin glampa í Miðjarðarhafssólinni.