Valle del Este er 18 holu golfvöllur sem er hannaður með það í huga að hafa brautirnar miserfiðar.
Völlurinn var teiknaður af José Canales sem skipulagði hvert smáatriði og felldi völlinn inn í umhverfið með snjallri notkun gróðurs.
Hönnun vallarins og staðsetning gera hann stórfenglegan. Sérstaka athygli vekja teigarnir sem eru á upphækkunum úr hraungrýti og brautirnar eru breiðar og skemmtilegar.
Sérlega skemmtilegur golfvöllur fyrir golfleikara af öllu tagi.