Skólamál á Spáni

Að flytja til Spánar og taka börnin burt úr sínu vanalega umhverfi, vinum og skóla, er mjög afdrifarík ákvörðun fyrir foreldra að taka. Þegar útlend börn þurfa halda áfram námi sínu á Spáni getur tungumálakunnátta verið vandamál. Spænskir skólastjórnendur gera sér grein fyrir því að útilokað er að halda áfram námi, án þess að læra tungumálið, og því hafa flestir skólar á Spáni góð tungumálanámskeið sem tryggja að útlend börn læra fljótlega að tala spænsku.

Skólaárið á Spáni er frá september til júní. Á hvaða tíma dags kennsla fer fram getur farið eftir svæðum. Sum svæði gera hlé (siesta) á milli kl. 13-15:30.  og þá er mæting aftur í skólann klukkan 17:30.

Á Spáni eru bæði einkaskólar og ríkisskólar. Ríkisskólarnir eru líkir skólum í Bretlandi. Við 16 ára aldur fá nemendur “titulo de graduado escolar” skírteini sem veitir þeim rétt til að ganga í menntaskóla og þaðan í háskóla.

Einkaskólarnir fylgja námskrá ríkisins sem gerð er fyrir úrvalsnemendur. Að loknu námi þar geta þeir farið í háskóla ef einkunnir þeirra leyfa það. Spænskir háskólar taka gild stúdentspróf (“A” levels) frá breskum skólum.


Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan