Hátíðir

Hvers kyns hátíðir eru haldnar um allan Spán í hverri viku. Sérhver bær, hve lítill sem hann er, heldur hátíð til skemmtunar fyrir íbúa sína.

Kjötkveðjuhátíðir eru víða haldnar í febrúar. Þá klæðist fólk skrautlegum búningum og syngur og dansar. Í páskavikunni er gjarnan haldið upp á páskana með daglegum fjöldagöngum til að minnast krossfestingar frelsarans.

Maíhátíðin er árlegur viðburður í Torrevieja. Þá er tjaldborg reist og þjóðbúningar frá Sevilla sýndir og dansað og sungið framundir morgun.

Á Jónsmessunni eru kveiktir varðeldar og brenndar risastórar styttur úr pappírsmassa af Jóhannesi skírara sem áður hefur verið til sýnis á stöðum þar sem þær blasa við öllum.

15. ágúst er hátíð sem hefur sérstaka merkingu í Elche. Þar er í höfuðkirkjunni sett upp leiksýning sem túlkar í orðum og tónum forna tíma og lýsir dauða og himnaför Maríu Guðsmóður.


Cultural explosions are a weekly event in Spain and in the Costa Blanca.

Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan