Sandhæðirnar við Guardamar del Segura eru friðaðar og þar er einstakt dýralíf. Nálægt Guardamar er saltvatnið La Mata, grunnt vatn sem er sannkölluð náttúruparadís með sjaldgæfu dýra- og jurtalífi, sem hefur aðlagað sig að hinu salta umhverfi. Það er nú friðað svæði og þar hafa búsetu fjölmargar fuglategundir - háfættar trönur, ýmsar andategundir, bleikir flamingóar og fleiri tegundir. Sumar þeirra hafa þróað sitt eigið varnarkerfi gegn hinu volga vatni sem gufar þar upp.
Stærra saltvatn er við Torrvieja (vötnin eru tengd með manngerðum skurði). Þetta vatn er miðstöð mestu saltframleiðslu í Evrópu. Saltið er selt víða um heim, t.d. til Skandinavíu og Japan. Þar er líka verndarsvæði og á svæðinu öllu milli vatnanna og sjávar er loftslag einstaklega heilnæmt.
Ólíkt náttúrufar er síðan á lítilli eyju sem heitir Tabarca, þar sem er verndarsvæði neðansjávar. Kafarabúnað ásamt tilheyrandi leyfi þarf til að skoða þetta svæði eða fara með báti með glerbotni frá Santa Pola til að skoða þetta lífríki sem var nánast að engu orðið, en er nú að ná sér aftur í kristaltæru vatni.