Staðsetningar

Elche

Spænska borgin Elche er fræg fyrir aldagamla pálmalundi og dásamlegar baðstrendur. Alþjóðaflugvöllurinn El Altet er innan bæjarmarkanna. Elche er þekkt fyrir framleiðslu á gæðaskóm.  Borgin er mörg þúsund ára gömul og minjar eru bæði um siðmenningu Ibera, Fönikíumanna, Rómverja og Mára í þessari nútímaborg þar sem er fjöldi veitingahúsa, verslunarkjarna og mikið menningarlíf.

Elche var upphaflega rómönsk borg og u.þ.b. helmingurinn af henni er pálmalundir sem hafa verið settir á heimsminjaskrá. Einn þeirra, The Palmeral, er sem vin í eyðimörkinni með döðlupálmum og var gerður af aröbum þegar þeir réðu þessu svæði fyrir 1.000 árum. UNESCO hefur sett The Palmeral í Elche á skrá yfir menningarsvæði sem dæmi um landbúnað araba í Evrópu.

 

Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan