Garrucha er í Almeria héraðinu og býr yfir miklum andstæðum. Almeria nýtur ekki aðeins góðs af hlýju loftslagi heldur einnig af fjölbreyttu listalífi, sögu og náttúrufari. Líkt og í Brittany í Frakklandi er þar víðáttumikil strönd með dásamlegar sandstrendur og afskekkta klettavíkur. Áhrif Máranna sjást í smáþorpum með steinlögðum krókóttum götum og hvítkölkuðum húsum. Þurrt og hlýtt loftslagið í Almería er mjög hagstætt fyrir þá sem þjást af gigt, liðagigt og asma.
Héraðið býður upp á fjölbreytt úrval af tómstundaiðkun eins og sund, sólböð, fiskveiðar, köfun, dýfingar, svifdrekaflug, golf, tennis, hestaferðir og gönguferðir. Að vetrinum getur skíðafólk farið í hinar frægu skíðabrekkur í Sierra Nevada, sem er aðeins í fárra klukkustunda akstursfjarlægð.
Garrucha er á milli baðstrandanna í Vera Playa og hins sögufræga Mojacar skammt frá Sierra Cabrerra fjöllunum. Þetta er upplagður staður fyrir sumarhús. Nóg sólskin og margt að sækja af spennandi ævintýrum eða bara til að hvíla sig og njóta lífsins.