Staðsetningar

Mojacar

Þessi mikilfenglegi kastalabær frá tímum Mára stendur á klettasnös ofan við lítt snortnar strendur Miðjarðarhafsins.

Mojacar varð að hálfgerðum draugabæ upp úr 1960 eins og margir aðrir bæir á suðaustur Spáni þegar flest allt verkfært fólk flutti norður og fór að vinna í verksmiðjum í grennd við Barcelona. Til að draga að nýja íbúa fengu allir ókeypis land sem vildu byggja á því og að ári liðnu var Mojacar orðin vinsæl listanýlenda. Ferðamenn heilluðust líka af fegurð staðarins og á næstu áratugum risu fjölmörg hótel og glæsihús meðfram ströndinni.

Glampandi hvít húsin í Mojacar eru í hæðum gegnt aðal ferðamannasvæðinu meðfram ströndinni. Hlykkjóttar göturnar í þessum gamla bæ eru dularfullar og töfrandi. Litlar verslanir og barir eru á hverju horni og bera vitni ekta spænskri gestrisni.

 

Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan