Staðsetningar

Sierra de Hondon

Ef þú heldur að það séu aðeins sjóaðir ferðalangar sem hafa orðið varir við hve eftirsótt Costa Blanca er skaltu hugsa þig betur um. Spánverjar sjálfir hafa líka tekið eftir því og notfæra sér það.

Tíu bæjarstjórnir frá svæðinu umhverfis Sierra de Crevillente fjöllin hafa sameinast um að mynda svæði sem kallast: La Isla de Interior, eyjan inni í landi. Einkunnarorð þeirra eru: “Í staðinn fyrir ströndina.”

Einn hinna tíu bæja er Hondón de Las Nieves, paradís þeirra sem vilja komast í burtu frá sandi og sólarolíu. Ef þú veist ekki að hverju þú ert að leita, þá er líklegt að þú akir þar framhjá. Það er auðvelt að taka ekki eftir þessum smábæjum þó þjóðvegirnir liggja rétt hjá þeim.

Hondón de Las Nieves er syðsti bærinn við La Isla de Interior. Það borgar sig að stoppa þar. Lítil barokkó kirkja frá 1685 bætir upp skortinn á stórum dómkirkjum.

Staðsetningin þessa svæðis er að mörgu leyti kostur. Aðeins 20 kílómetrar eru til Evrópsku pálmagarðanna í Elche og 35 kílómetrar til Alicante þar sem er alþjóðaflugvöllur.

 

Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan