Mar Menor er stærsta sjávarlónið í Evrópu, 170 fermílur og hvergi dýpra en 7 metrar. Á þessu svæði er veðráttan mild, mjög lítil úrkoma og yfir 3.000 sólskinsstundir á ári. Vatnið sjálft hefur mikinn lækningamátt og hefur myndað mikið af leir. Margir álíta þennan leir hafa mikinn lækningakraft, einkum fyrir ýmsa húðsjúkdóma. Hann eyðir líka bólgum sem hefur góða áhrif fyrir þá sem þjást af gigt, iktsýki eða beinbrotum.
San Pedro del Pinatar er einn aðal ferðamannastaðurinn á Muria ströndinni við Mar Menor. San Pedro, þar sem áður var einkum stunduð útgerð og landbúnaður, er nú orðinn aðalbærinn á Calida ströndinni. Aðdráttarafl San Pedro felst einkum í baðströndunum. Hér er stöndin Lo Pagan sem er mjög vinsæll ferðamannastaður. Rétt við Mar Menor eru svo baðstrendurnar stóru La Puntica og La Curva. Á þessu vatnasvæði er hægt að stunda alls konar vatnaíþróttir svo sem siglingar, köfun og seglbrettareið.
Auk vatnaíþróttanna býður þetta svæði líka upp á úrvals golfvelli. Þar er t.d. hinn alþjóðlegi La Manga klúbbur og nýlega er búið að opna vellina Sucina Golf og Country Club skammt frá San Javier flugvellinum. Einnig er í San Pedro verndarsvæði fyrir hið einstaka lífríki þar. Flamingóar og ýmsir farfuglar koma þar við á hverju ári á leið sinni milli Evrópu og Afríku.