Staðsetningar

Torrevieja

 Milli tveggja stórra saltvatna og Miðjarðarhafsins er fiskiþorpið Torrevieja. Það er nú orðið mikilvægasti staður héraðsins og miklar áætlanir eru uppi um að bæta samgöngukerfið þar. Það er á góðum stað í 30 til 40 mínútna akstursfjarlægð frá alþjóðaflugvöllunum í Alicante og Murcia og á undanförnum árum hafa nýir vegir gert aðkomuna að bænum mun auðveldari en áður.

Vegna legu sinnar og loftslags er bærinn álitinn einhver sá heilnæmasti í heimi af Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni. Þess vegna hafa Spánverjar sjálfir flykkst þangað til að kaupa sér þar sumarhús í sólinni. Þar er alþjóðlegt andrúmsloft sem vel kemur fram í verslunum og öðrum þjónustufyrirtækjum. Torrevieja hefur hlotið margskonar verðlaun fyrir að vera meðal náttúrvinsamlegustu bæjarfélaga á Spáni.

 

 

Vertu áskrifandi af fréttabréfinu okkar

Skáðu netfangið hér fyrir neðan